Uppboðsferlið
Hér er yfirlit yfir uppboðsferlið hjá Uppboðshúsinu - hvort sem þú hyggst bjóða í verk eða leggja verk til uppboðs.
Fyrir kaupendur
Öll uppboð eru í rauntíma og opin öllum sem auðkenna sig með Kenni. Boð eru bindandi og hæstbjóðandi fær kröfu senda í heimabanka.
Skráðu þig inn með Kenni rafrænum skilríkjum.
Veldu úr uppboðum og finndu verk sem höfða til þín.
Gerðu boð í beinni meðan á uppboði stendur.
Hæstbjóðandi fær kröfu senda í heimabanka.
Helstu hugtök
Lágmarksverð er það verð sem seljandi samþykkir. Ef boð ná ekki lágmarksverði selst verkið ekki. Þú sérð hvort lágmarksverð hefur náðst á meðan uppboðinu stendur.
Hæsta boðið er sú upphæð sem leiðir uppboðið hverju sinni. Nýtt boð þarf alltaf að vera hærra en hæsta boð að viðbættri lágmarkshækkun.
Lágmarkshækkun ákvarðar lágmarksfjárhæðina sem þarf til þess að yfirbjóða. Þú getur alltaf boðið meira en lágmarkshækkun.
Ef boð berst á síðustu sekúndum framlengist uppboðstíminn sjálfkrafa. Þannig fá allir bjóðendur tækifæri til að svara.
Gott að vita
Boð eru bindandi. Þegar þú gerir boð skuldbindur þú þig til kaupa ef þú ert hæstbjóðandi.
Greiðsla fer fram með bankakröfu sem Uppboðshúsið stofnar í heimabanka kaupanda innan nokkurra daga frá uppboðslokum.
Greiðslufrestur er 7 dagar frá útgáfu kröfu. Kaupandaþóknun bætist ofan á hammerverð.
Auðkenning fer fram með Kenni rafrænum skilríkjum.
Fyrir eigendur listaverka
Sérfræðingar Uppboðshússins meta hvert verk vandlega - ástand, uppruna og verðmæti - áður en það er samþykkt til uppboðs.
Hladdu upp myndum og grunnupplýsingum um verkið.
Sérfræðingar meta ástand, uppruna og verðmæti.
Samþykkt verk eru skráð og sett í næsta uppboð.
Engin skráningargjöld. Þú borgar aðeins söluþóknun ef verkið selst.
Þóknun er ákveðin í samráði við seljanda og fer eftir verðmæti verksins.
Uppgjör berst innan 14 daga frá greiðslu kaupanda.
Svar berst innan 5 virkra daga.
Spurt og svarað
Við höldum mánaðarleg uppboð þar sem hver og einn getur boðið í listaverk. Uppboðin fara fram bæði á vefsíðu okkar. Hæsta boð í lok uppboðsins vinnur.
Þú skráir þig á vefsíðu Uppboðshússins með því að smella á "Aðgangur" og stofnar notanda með því að skrá inn símanúmerið þitt. Þegar þú hefur skráð þig getur þú boðið í allar vörur sem eru í boði.
Lágmarksboð er mismunandi eftir vörum og er skilgreint í uppboðsskilmálum hverju sinni.
Hámarksboðið þitt er sú upphæð sem þú ert tilbúin/n að greiða fyrir verkið hverju sinni.
Lágmarskverð er trygging seljanda gagnvart því að verkið seljist á of lágu verði. Ef að hamarshögg er undir lágmarksverði þá selst verkið ekki. Hæstbjóðandi fær þá ekki verkið og seljandinn selur ekki verkið.
Ef boð berst í verk þegar innan við eina mínútur (60 sek.) eru eftir af uppboðinu framlengist uppboðið um eina mínútu (60 sek.).
Já, öll tilboð sem berast í listaverk í gegnum uppbodshusid.is eru skuldbindandi. Sjá skilmála fyrir ítarlegri upplýsingar.
Skoðaðu uppboð eða sendu okkur verk til skoðunar.
Greiðsla berst að frádreginni þóknun eftir sölu.
Verðmat verkanna er byggt á ýmsum upplýsingum, meðal annars höfundi verks, stærð, efni, söluverð svipaðra verka og sögulegum upplýsingum verksins.
Ef þú átt hæsta boð við lok uppboðs þá færð þú sjálfkrafa tölvupóst á netfangið sem þú skráðir með staðfestingu. Í tölvupóstinum eru allar helstu upplýsingar um afhendingu, greiðslu o.s.frv. Krafa verður einnig send í heimabanka með eindaga eftir 3 virka daga.
Á uppboðum er lagt 12% uppboðsgjald ofan á slegið verð. Innifalið í því gjaldi er fylgiréttargjald skv. höfundalögum nr. 73/1972, sem hæstbjóðandi greiðir.
Kaupandi greiðir 12% þóknun ofan á lokaverð vörunnar.
Við vinnum með fagaðilum og sérfræðingum til að sannreyna uppruna og ástand vörunnar. Allar upplýsingar um vöruna eru birtar við skráningu þess á uppboð.
Já, öll verk á uppboðum eru til sýnis í Mobility – Urriðaholtsstræti 24, 210 Garðabæ þegar uppboð hefur byrjað.
Þegar unnið hefur verið úr uppboðsgögnum mun krafa verða send kaupendum í netbanka innan 3ja virkra daga eftir lok uppboðs. Ef áhugi er á að greiða á annan máta er hægt að senda fyrirspurn á info@uppbodshusid.is
Afhending seldra verka fer fram í Mobility – Urriðaholtsstræti 24 vikuna eftir uppboð milli kl 11-16 virka daga. Einnig er hægt að fá verkið sent ef óskað er sérstaklega eftir því.
Uppboðshúsið tekur á móti listmunum til sölu á vefuppboðum. Best er að smella á "Selja Verk" og fylla út upplýsingarnar þar. Við höfum svo samband við þig.
Seljandi greiðir 12% af lokaverði vörunnar.
Þegar við höfum upplýsingar um listaverkið er unnið verðmat á verkinu og er verðmatið ásamt upplýsingum um næsta uppboð sent til baka á seljanda. Ef seljandi er sáttur við verðmat þá setur hann upp lágmarksverð. Þegar uppboði er svo lokið er andvirði sölunnar greitt til seljanda að frádreginni söluþóknun.
Ef varan selst ekki hefur þú möguleika á að skrá hana í næsta uppboð eða taka hana af skrá. Við munum hafa samband við þig.