1. Almenn ákvæði
Skilmálarnir gilda um kaup á verkum á uppboðum Uppboðshússins ehf. og í beinni sölu á vefnum. Á uppboði telst samningur kominn á þegar uppboðshaldari slær verkið hæstbjóðanda. Í beinni sölu telst hann kominn á þegar kortagreiðsla hefur verið staðfest.
2. Ástand verka
Öll verk eru seld í því ástandi sem þau eru í við hamarshögg.
Kaupandi ber ábyrgð á að kynna sér ástand verka áður en boð er lagt fram, hvort sem er með ljósmyndum og lýsingum á vefsíðu eða með því að leita upplýsinga hjá starfsfólki Uppboðshússins.
Flest verk sem seld eru á uppboðum eru notuð eða gömul og kunna því að bera merki um slit, viðgerðir eða aðra galla. Slíkir gallar eru á ábyrgð kaupanda og hvorki Uppboðshúsið né seljandi bera ábyrgð á þeim.
3. Ágreiningur um boð
Komi upp ágreiningur um hver hafi átt hæsta boð, eða reynist fleiri en einn hafa boðið sama hæsta boð, áskilur uppboðshaldari sér rétt til að ákveða hvort viðkomandi verk verði boðið upp að nýju. Ákvörðun uppboðshaldara er endanleg.
4. Uppboðsgjald og fylgiréttargjald
Ofan á hamarsverð leggst 12% uppboðsgjald.
Þar ofan á leggst fylgiréttargjald sem rennur til höfundar verksins, sbr. 25. gr. b höfundalaga nr. 73/1972. Það er ekki innifalið í uppboðsgjaldinu.
Fylgiréttargjaldið er þrepaskipt og reiknast af hamarsverði. Viðmiðunarfjárhæðirnar eru í evrum, sbr. 3. mgr. 25. gr. b höfundalaga, og eru umreiknaðar með opinberu viðmiðunargengi Seðlabanka Íslands á söludegi: 10% af fyrstu 3.000 evrunum 5% af 3.000 til 50.000 evrum 3% af 50.000 til 200.000 evrum 1% af 200.000 til 350.000 evrum 0,5% af 350.000 til 500.000 evrum 0,25% af því sem umfram er
Hámark fylgiréttargjalds af hverri sölu er 12.500 evrur. Gjaldið fellur niður þegar liðin eru 70 ár frá andláti höfundar. Uppboðshúsið innheimtir gjaldið og skilar því til Myndstefs.
5. Virðisaukaskattur
Uppboðsgjaldið er gefið upp með virðisaukaskatti.
6. Greiðslur
Uppboð: Krafa er send kaupanda í heimabanka eigi síðar en þremur dögum eftir uppboð. Greiðslufrestur er 7 dagar frá útgáfu kröfu.
Bein sala: Verk í beinni sölu eru greidd með greiðslukorti við kaup. Greiðslan fer um örugga greiðslusíðu Rapyd og Uppboðshúsið fær aldrei kortaupplýsingar kaupanda.
7. Afhending verka og geymslugjöld
Keypt verk skal sækja innan 7 daga frá kaupum. Að þeim tíma liðnum reiknast geymslu- og tryggingagjald.
Verk eru einnig send innanlands og til útlanda gegn sendingargjaldi. Um sendingarmáta, sendingargjöld og tryggingu í flutningi gilda upplýsingar á síðunni Sendingar og afhending, uppbodshusid.is/sendingar.
8. Skilaréttur og endurgreiðslur í beinni sölu
Verk sem keypt er í beinni sölu á vefnum er keypt í fjarsölu. Kaupandi getur fallið frá kaupunum innan 14 daga án þess að tilgreina ástæðu, sbr. 16. gr. laga nr. 16/2016 um neytendasamninga. Fresturinn hefst þann dag sem kaupandi, eða sá sem hann tilnefnir, tekur við verkinu.
Kaupandi tilkynnir ákvörðunina áður en fresturinn rennur út, til dæmis með tölvupósti á info@uppbodshusid.is með reikningsnúmeri kaupanna. Verkinu skal skilað eða það sent til baka innan 14 daga frá tilkynningunni.
Uppboðshúsið endurgreiðir allt sem kaupandi greiddi, þar með talið sendingargjald til hans, eigi síðar en 14 dögum eftir að tilkynningin berst. Endurgreitt er á sama greiðslukort í gegnum Rapyd. Uppboðshúsinu er heimilt að halda endurgreiðslunni eftir þar til verkið hefur borist aftur eða kaupandi hefur sýnt fram á að það hafi verið sent.
Kaupandi ber beinan kostnað af því að skila verkinu. Hann ber einnig ábyrgð á rýrnun á verðgildi þess sem stafar af annarri meðferð en þarf til að kynna sér verkið.
9. Persónuvernd
Meðferð persónuupplýsinga fer fram í samræmi við gildandi persónuverndarlög og GDPR.
10. Varnarþing
Varnarþing Uppboðshússins ehf. er við Héraðsdóm Reykjaness.
11. Upplýsingar
Uppboðshúsið ehf.
Kennitala: 530325-0830
Urriðaholtsstræti 24
210 Garðabær
Sími: 898 9097
Netfang: info@uppbodshusid.is