Fara í efniFara í efni
Uppboðshúsið

Þjónusta

Sendingar og afhending

Hvort sem þú sækir verkið eða færð það sent heim, þá sjáum við til þess að það komist heilt á leiðarenda.

Hvenær er hægt að sækja verk?

Keypt verk skal sækja innan 7 daga frá uppboði. Að 7 dögum liðnum reiknast geymslu- og tryggingagjald á verkin.

Afhending innanlands

Við bjóðum upp á sendingu með Póstinum og völdum flutningsfyrirtækjum um allt land. Sendingargjald reiknast eftir stærð og þyngd verksins. Hafið samband við starfsmenn til að fá tilboð í sendingu áður en greiðsla fer fram.

Afhending erlendis

Sending á verkum til útlanda er möguleg gegn aukagjaldi. Útflutningsleyfi getur þurft fyrir eldri verk og verk eftir þekkta listamenn. Starfsmenn aðstoða við pökkun, tryggingu og pappírsgang.

Pökkun og trygging

Öll verk eru pökkuð af fagmönnum í viðeigandi umbúðir til varnar gegn raka og hnjaski. Trygging er innifalin í sendingargjaldinu fyrir flutning innanlands. Fyrir verðmæt verk og sendingar erlendis er hægt að bæta við sérstakri tryggingu.

Sækja á staðnum

Kjósi kaupandi að sækja verkið sjálfur er það án aukagjalds. Bókið tíma fyrirfram með tölvupósti eða síma til að tryggja að verkið sé tilbúið og starfsmaður á staðnum.

Hvar og hvenær

Urriðaholtsstræti 24, 210 Garðabær
Mán til fös 10 til 17. Lau eftir samkomulagi.

Hafa samband um sendingar

Sími: 898 9097
Netfang: info@uppbodshusid.is