Uppboðshúsið
Uppboðshúsið er vettvangur fyrir listunnendur, safnara og fjárfesta sem vilja eignast einstök listaverk á öruggan og þægilegan hátt.
Markmið okkar er að gera upplifunina af því að kaupa list aðgengilega, spennandi og áreiðanlega fyrir alla viðskiptavini okkar.
Hvað gerum við?
Við viljum bjóða nýrri kynslóð listaunnenda aðgengi að nútímalist jafnt sem klassískri list.
Uppboðshúsið heldur reglulega uppboð og er einnig með verk í beinni sölu á föstu verði, merkt sem söluverk. Þau kaup fara í gegnum samband við okkur.
Einnig bjóðum við upp á endursölu listaverka frá einstaklingum og fyrirtækjum, bæði í beinni sölu og á uppboðum.
Um fyrirtækið
Uppboðshúsið var stofnað árið 2026 og er fjölskyldufyrirtæki.
Uppboðshúsið er í samvinnu með sérfræðingum sem hafa víðtæka reynslu til að verðmeta listaverk auk þess sem hægt er að leita til forvarðar ef það þarf að staðfesta listamann.