
Næsta uppboð
29. nóvember
Opnar sunnudaginn 29. nóvember og lýkur sunnudaginn 6. desember. Skráðu þig og þú færð listann yfir verkin áður en það opnar.
Desemberuppboð
Frá mati til uppgjörs
Mat á verkinu
Áður en listaverk er tekið til uppboðs fer það í gegnum úttekt teymis okkar. Við metum ástand, uppruna og listrænt gildi. Aðeins valin verk komast á uppboð.
Staðfest auðkenni
Bjóðendur auðkenna sig með rafrænum skilríkjum til að tryggja öryggi allra aðila. Boð eru bindandi, og aðrir í "salnum" sjá upphæðina en ekki hver bauð.
Gagnsætt ferli
Boð eru í rauntíma með skýrum reglum. Kaupandi fær bankakröfu með 7 daga greiðslufresti og seljandi fær uppgjör innan 14 daga frá greiðslunni. Engin falin gjöld, þóknun er alltaf skýr fyrirfram.

Eiga verk þín erindi hjá okkur?
Við metum verkið, tökum myndir af því og setjum það á uppboð. Þú borgar ekkert nema það seljist.
- Engin skráningargjöld- það kostar ekkert að senda inn verk
- Verðmat- svar innan 5 virkra daga
- Söluþóknun aðeins ef verkið selst- reiknuð af hamarsverði
- Uppgjör innan 14 daga- frá greiðslu kaupanda
Þar sem listaverk finna ný heimili
Garðabær