Hjálp
Algengar spurningar og svör um uppboð, kaup og sölu listaverka hjá Uppboðshúsinu.
Við höldum reglulega uppboð þar sem hver og einn getur boðið í listaverk. Uppboðin fara fram á vefsíðu okkar í rauntíma. Hæsta boð í lok uppboðsins vinnur.
Þú skráir þig inn með rafrænum skilríkjum í gegnum Kenni. Smelltu á „Skrá inn“ efst í valmyndinni og fylgdu leiðbeiningunum. Þegar þú hefur skráð þig getur þú boðið í öll verk sem eru í boði.
Lágmarksboð er mismunandi eftir verkum og er skilgreint í uppboðsskilmálum hverju sinni.
Hámarksboðið er sú upphæð sem þú ert til í að greiða fyrir verkið. Kerfið býður sjálfkrafa fyrir þig upp að því marki.
Lágmarksverð er trygging seljanda gagnvart því að verkið seljist á of lágu verði. Ef lokaboð nær ekki lágmarksverði selst verkið ekki.
Ef boð berst í verk þegar innan við eina mínútu (60 sek.) er eftir af uppboðinu framlengist uppboðið um eina mínútu (60 sek.).
Já, öll tilboð sem berast í listaverk í gegnum uppbodshusid.is eru skuldbindandi. Sjá skilmála fyrir ítarlegri upplýsingar.
Verðmat verkanna byggir á ýmsum upplýsingum, meðal annars höfundi verks, stærð, efni, söluverði svipaðra verka og sögulegum upplýsingum verksins.
12% uppboðsgjald ofan á hamarsverð, auk fylgiréttargjalds til höfundar sem er þrepaskipt eftir fjárhæð og byrjar í 10%. Fylgiréttargjaldið er ekki innifalið í uppboðsgjaldinu. Sundurliðun sést á hverri verkssíðu.
Gjald sem rennur til höfundar verksins þegar það er selt aftur, sbr. 25. gr. b höfundalaga nr. 73/1972. Það er þrepaskipt eftir hamarsverði: 10% af fyrstu 3.000 evrunum, 5% upp í 50.000 evrur og lægra hlutfall þar fyrir ofan, að hámarki 12.500 evrur. Uppboðshúsið innheimtir gjaldið og skilar því til Myndstefs. Það fellur niður 70 árum eftir andlát höfundar.
Við vinnum með fagaðilum og sérfræðingum til að sannreyna uppruna og ástand hvers verks. Allar upplýsingar eru birtar á verkssíðu áður en uppboð hefst.
Já, öll verk á uppboðum eru til sýnis í Mobility, Urriðaholtsstræti 24, 210 Garðabæ þegar uppboð hefur byrjað.
Bankakrafa er send í heimabanka kaupanda innan nokkurra daga frá uppboðslokum. Greiðslufrestur er 7 dagar. Ef óskað er eftir öðrum greiðslumáta er hægt að hafa samband á info@uppbodshusid.is.
Afhending seldra verka fer fram í Mobility, Urriðaholtsstræti 24, á virkum dögum kl. 11-16 vikuna eftir uppboð. Einnig er hægt að fá verkið sent ef óskað er eftir því.
Uppboðshúsið tekur á móti listmunum til sölu á vefuppboðum. Smelltu á „Selja verk“ og fylltu út upplýsingarnar. Við höfum samband innan 5 virkra daga.
Söluþóknun er 12% af hamarsverði. Andvirði sölunnar er greitt til þín að frádreginni þóknuninni. Engin skráningargjöld, og þú borgar ekkert ef verkið selst ekki.
Þegar við höfum upplýsingar um listaverkið er unnið verðmat á verkinu og er verðmatið ásamt upplýsingum um næsta uppboð sent til baka á seljanda. Ef seljandi er sáttur við verðmat þá setur hann upp lágmarksverð. Þegar uppboði er svo lokið er andvirði sölunnar greitt til seljanda að frádreginni söluþóknun.
Ef verkið selst ekki geturðu skráð það í næsta uppboð eða tekið það af skrá. Við höfum samband við þig.
Ef þú átt hæsta boð við lok uppboðs færð þú staðfestingu í tölvupósti. Þar koma fram upplýsingar um greiðslu og afhendingu. Bankakrafa er send í heimabanka þinn innan nokkurra daga frá uppboðslokum.
Á uppboðum leggst 12% uppboðsgjald ofan á hamarsverð. Ofan á það leggst fylgiréttargjald til höfundar, sem er þrepaskipt eftir fjárhæð og byrjar í 10%. Seljandi greiðir 12% söluþóknun af hamarsverði.