Hvað gerist þegar ég á hæsta boð í lokin?
Þú færð staðfestingu í tölvupósti með upplýsingum um greiðslu og afhendingu. Bankakrafa er send í heimabanka þinn eigi síðar en 3 dögum eftir uppboð.
Hvað borga ég ofan á hamarsverðið?
Uppboðsgjald, 12% af hamarsverði með virðisaukaskatti, og fylgiréttargjald til höfundar. Listaverkið sjálft ber ekki virðisaukaskatt.
Af 100.000 kr. hamarsverði greiðir þú því alls 122.000 kr..
| Hamarsverð | 100.000 kr. |
|---|---|
| Uppboðsgjald 12% | +12.000 kr. |
| þar af virðisaukaskattur 24% | 2.323 kr. |
| Fylgiréttargjald | +10.000 kr. |
| Þú greiðir alls | 122.000 kr. |
Hvernig borga ég og hve langan frest hef ég?
Þú greiðir bankakröfuna í heimabanka. Greiðslufresturinn er 7 dagar frá útgáfu kröfu.
Hvenær og hvar sæki ég verkið?
Keypt verk skal sækja innan 7 daga frá kaupum. Að þeim tíma liðnum reiknast geymslu- og tryggingagjald, sbr. 7. gr. skilmálanna.
Verk eru einnig send innanlands og til útlanda gegn sendingargjaldi. Staðsetning og afhendingartími eru á síðunni Sendingar og afhending.
Eru boð bindandi?
Já. Boð eru bindandi, og þegar þú gerir boð skuldbindur þú þig til kaupa ef þú ert hæstbjóðandi.
Gildir þetta líka um söluverk?
Söluverk eru verk á föstu verði sem eru keypt beint á vefnum, sjá Sölusíðuna. Á þau leggst ekkert uppboðsgjald. Greiðslan er útskýrð í 6. gr. skilmálanna.