Hvernig sendi ég verk inn?
Þú skráir þig inn með Kenni og fyllir út formið á vefnum. Listamaður og titill verks eru skyldureitir. Þú getur sett inn allt að 10 myndir, hverja allt að 20 MB.
Að auki geturðu skrifað tegund verks, tækni, ár, stærð, undirskrift, ramma, lýsingu, uppruna og ástand, og þína eigin hugmynd að verðmæti.
Hvað gerist eftir að ég sendi verkið?
Þú sérð stöðu innsendingarinnar á síðunni Mín verk. Staðan er ein af þessum: Innsending móttekin, Tekin til skoðunar, Frekari upplýsingar óskast, Samþykkt til uppboðs, Hafnað eða Skráð í uppboð.
Vanti okkur eitthvað sendum við þér skilaboð og þú svarar á síðu innsendingarinnar.
Hvernig er verk metið?
Verðmat byggist meðal annars á höfundi verks, stærð, efni, söluverði svipaðra verka og sögu verksins. Ástand og uppruni verksins eru líka metin.
Hver ákveður lágmarksverðið?
Þú. Þegar verðmat liggur fyrir ákveður þú lágmarksverðið, og undir því selst verkið ekki.
Er hægt að treysta á að verkið verði tekið?
Nei. Innsending er ekki loforð um að verk verði tekið til uppboðs, um verðmat eða um verð. Hvert verk er skoðað fyrir sig og Uppboðshúsið ákveður hvort það er samþykkt.
Hvað kostar að senda verk inn?
Ekkert skráningargjald. Söluþóknun er greidd aðeins ef verkið selst, sjá Hvað kostar að selja listaverk.