Hér er yfirlit yfir uppboðsferlið hjá Uppboðshúsinu, hvort sem þú hyggst bjóða í verk eða leggja verk til uppboðs.
Öll uppboð eru í rauntíma og opin öllum sem auðkenna sig með Kenni. Boð eru bindandi og hæstbjóðandi fær senda bankakröfu í heimabanka.
Skráðu þig inn með Kenni rafrænum skilríkjum.
Veldu úr uppboðum og finndu verk sem höfða til þín.
Gerðu boð í beinni meðan á uppboði stendur.
Hæstbjóðandi fær kröfu senda í heimabanka.
Lágmarksverð er það verð sem seljandi samþykkir. Ef boð ná ekki lágmarksverði selst verkið ekki. Þú sérð hvort lágmarksverð hefur náðst á meðan uppboðinu stendur.
Hæsta boðið er sú upphæð sem leiðir uppboðið hverju sinni. Nýtt boð þarf alltaf að vera hærra en hæsta boð að viðbættri lágmarkshækkun.
Lágmarkshækkun ákvarðar lágmarksfjárhæðina sem þarf til þess að yfirbjóða. Þú getur alltaf boðið meira en lágmarkshækkun.
Ef boð berst á síðustu sekúndum framlengist uppboðstíminn sjálfkrafa. Þannig fá allir bjóðendur tækifæri til að svara.
Boð eru bindandi. Þegar þú gerir boð skuldbindur þú þig til kaupa ef þú ert hæstbjóðandi.
Greiðsla fer fram með bankakröfu sem Uppboðshúsið stofnar í heimabanka kaupanda innan nokkurra daga frá uppboðslokum.
Greiðslufrestur er 7 dagar frá útgáfu kröfu. Uppboðsgjald og fylgiréttargjald bætast ofan á hamarsverð.
Auðkenning fer fram með Kenni rafrænum skilríkjum.
Sérfræðingar Uppboðshússins meta hvert verk vandlega, ástand, uppruna og verðmæti áður en það er samþykkt til uppboðs.
Settu inn myndir og grunnupplýsingar um verkið.
Sérfræðingar meta ástand, uppruna og verðmæti.
Samþykkt verk eru skráð og sett í næsta uppboð.
Engin skráningargjöld. Þú borgar aðeins söluþóknun ef verkið selst.
Söluþóknun er 12% af hamarsverði auk virðisaukaskatts.
Uppgjör berst innan 14 daga frá greiðslu kaupanda.
Svar berst innan 5 virkra daga.
Við höldum reglulega uppboð þar sem hver og einn getur boðið í listaverk. Uppboðin fara fram á vefsíðu okkar í rauntíma. Hæsta boð í lok uppboðsins vinnur.
Þú skráir þig inn með rafrænum skilríkjum í gegnum Kenni. Smelltu á „Innskrá“ efst í valmyndinni og fylgdu leiðbeiningunum. Þegar þú hefur skráð þig getur þú boðið í öll verk sem eru í boði.
Lágmarksboð er mismunandi eftir verkum og er skilgreint í uppboðsskilmálum hverju sinni.
Hámarksboðið er sú upphæð sem þú ert til í að greiða fyrir verkið. Kerfið býður sjálfkrafa fyrir þig upp að því marki.
Lágmarksverð er trygging seljanda gagnvart því að verkið seljist á of lágu verði. Ef lokaboð nær ekki lágmarksverði selst verkið ekki.
Ef boð berst í verk þegar innan við eina mínútu (60 sek.) er eftir af uppboðinu framlengist uppboðið um eina mínútu (60 sek.).
Já, öll tilboð sem berast í listaverk í gegnum uppbodshusid.is eru skuldbindandi. Sjá skilmála fyrir ítarlegri upplýsingar.
Verðmat verkanna byggir á ýmsum upplýsingum, meðal annars höfundi verks, stærð, efni, söluverði svipaðra verka og sögulegum upplýsingum verksins.
Skoðaðu uppboð eða sendu okkur verk til skoðunar.
Greiðsla berst að frádreginni þóknun eftir sölu.
Ef þú átt hæsta boð við lok uppboðs færð þú staðfestingu í tölvupósti. Þar koma fram upplýsingar um greiðslu og afhendingu. Bankakrafa er send í heimabanka þinn innan nokkurra daga frá uppboðslokum.
Á uppboðum leggst 12% uppboðsgjald ofan á hamarsverð. Ofan á það leggst fylgiréttargjald til höfundar, sem er þrepaskipt eftir fjárhæð og byrjar í 10%. Seljandi greiðir 12% söluþóknun af hamarsverði.
12% uppboðsgjald ofan á hamarsverð, auk fylgiréttargjalds til höfundar sem er þrepaskipt eftir fjárhæð og byrjar í 10%. Fylgiréttargjaldið er ekki innifalið í uppboðsgjaldinu. Sundurliðun sést á hverri verkssíðu.
Gjald sem rennur til höfundar verksins þegar það er selt aftur, sbr. 25. gr. b höfundalaga nr. 73/1972. Það er þrepaskipt eftir hamarsverði: 10% af fyrstu 3.000 evrunum, 5% upp í 50.000 evrur og lægra hlutfall þar fyrir ofan, að hámarki 12.500 evrur. Uppboðshúsið innheimtir gjaldið og skilar því til Myndstefs. Það fellur niður 70 árum eftir andlát höfundar.
Við vinnum með fagaðilum og sérfræðingum til að sannreyna uppruna og ástand hvers verks. Allar upplýsingar eru birtar á verkssíðu áður en uppboð hefst.
Nei, verkin eru ekki til sýnis. Ljósmyndir, lýsing og ástandsmat fylgja hverju verki á vefnum. Seld verk eru sótt í Mobility, Urriðaholtsstræti 24, 210 Garðabæ.
Bankakrafa er send í heimabanka kaupanda innan nokkurra daga frá uppboðslokum. Greiðslufrestur er 7 dagar. Ef óskað er eftir öðrum greiðslumáta er hægt að hafa samband á info@uppbodshusid.is.
Uppboðshúsið tekur á móti listmunum til sölu á vefuppboðum. Smelltu á „Selja verk“ og fylltu út upplýsingarnar. Við höfum samband innan 5 virkra daga.
Afhending seldra verka fer fram í Mobility, Urriðaholtsstræti 24, á virkum dögum kl. 11-16 vikuna eftir uppboð. Einnig er hægt að fá verkið sent ef óskað er eftir því.
Söluþóknun er 12% af hamarsverði. Andvirði sölunnar er greitt til þín að frádreginni þóknuninni. Engin skráningargjöld, og þú borgar ekkert ef verkið selst ekki.
Þegar við höfum upplýsingar um listaverkið er unnið verðmat á verkinu og er verðmatið ásamt upplýsingum um næsta uppboð sent til baka á seljanda. Ef seljandi er sáttur við verðmat þá setur hann upp lágmarksverð. Þegar uppboði er svo lokið er andvirði sölunnar greitt til seljanda að frádreginni söluþóknun.
Ef verkið selst ekki geturðu skráð það í næsta uppboð eða tekið það af skrá. Við höfum samband við þig.