Fara í efni
Uppboðshúsið

Persónuvernd

Hvaða upplýsingar Uppboðshúsið safnar um þig, af hverju, hverjir fá aðgang að þeim og hvað þú getur gert við þær.

1. Hvaða upplýsingum við söfnum

Innskráning: þegar þú skráir þig inn með rafrænum skilríkjum fáum við nafn, kennitölu og símanúmer frá Kenni. Við fáum aldrei skilríkin sjálf né PIN-númer.

Uppboð og kaup: boð sem þú leggur fram, hvenær þau bárust, hvaða verk þau tilheyra og reikningar sem verða til við kaup.

Verk sem þú sendir inn: upplýsingar um verkið, myndir af því og samskipti okkar um það.

Póstlisti: netfangið þitt, ef þú skráir þig.

Tæknilegar upplýsingar: IP-tala, gerð vafra og tíminn þegar beiðnin barst. Þetta verður til við hverja heimsókn á hvaða vef sem er og er notað til að halda vefnum uppi og öruggum.

2. Af hverju við notum þær og á hvaða grundvelli

Til að efna samninginn við þig: taka við boðum, slá verk, gefa út reikninga, taka við greiðslum og afhenda verk. Án þessara upplýsinga er ekki hægt að versla hér.

Vegna lagaskyldu: bókhald og reikningar, og skil á fylgiréttargjaldi til Myndstefs.

Vegna lögmætra hagsmuna: að halda vefnum uppi, verjast misnotkun og geta rakið hvað gerðist þegar eitthvað fer úrskeiðis.

Á grundvelli samþykkis: póstlistinn og mælingarkakan frá Meta. Hvort tveggja má afturkalla hvenær sem er, og það hefur engin áhrif á það sem á undan er gengið.

3. Vafrakökur og mælingar

Nauðsynlegar kökur: innskráningin geymir köku sem heldur þér inni á meðan þú ert að versla. Hún er forsenda þess að vefurinn virki og fyrir henni er ekki beðið um samþykki.

Villur og notkun: við notum PostHog til að finna villur og hnappa sem virka ekki. Það skráir smelli og flettingar og tekur upp hvernig síðan hreyfist, en felur allan texta og allt sem þú slærð inn, hendir IP-tölunni og setur enga köku. Gögnin eru geymd innan EES.

Mælingarkaka frá Meta: við notum Meta-pixilinn til að sjá hvaða auglýsingar á Facebook og Instagram skila fólki inn á vefinn. Hann sendir Meta hvaða síður voru skoðaðar og hvort kaup urðu að veruleika, ásamt IP-tölu og auðkenni vafrans.

Pixillinn hleðst ekki fyrr en þú hefur samþykkt hann. Hafir þú hafnað honum, eða ekki svarað, er engin skrá frá Meta sótt inn á síðuna.

Meta er sjálfstæður ábyrgðaraðili að því sem það fær með þessum hætti. Upplýsingar um vinnsluna eru í gagnastefnu Meta á facebook.com/privacy/policy.

Svarið þitt er geymt í vafranum þínum, ekki hjá okkur, og þú getur breytt því hér að neðan hvenær sem er.

4. Hverjir vinna upplýsingarnar fyrir okkur

Við seljum engar persónuupplýsingar. Til að reka vefinn notum við eftirfarandi þjónustur, sem vinna upplýsingar fyrir okkar hönd:

Kenni: rafræn skilríki og innskráning. Supabase: gagnagrunnurinn og myndirnar. Vercel og Cloudflare: hýsing vefsins og uppboðskerfisins. SendGrid: tölvupóstur. Twilio: SMS. Sentry: villuskráning. PostHog: villur og notkun vefsins, án köku. Meta: mælingarkakan, hafir þú samþykkt hana.

Sumar þessara þjónusta eru reknar utan Evrópska efnahagssvæðisins. Flutningur þangað byggir á stöðluðum samningsákvæðum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.

Að auki afhendum við upplýsingar þegar okkur ber lagaskylda til, svo sem til skattyfirvalda, og til Myndstefs vegna fylgiréttargjalds.

5. Hversu lengi upplýsingarnar eru geymdar

Reikningar og annað bókhaldsgagn eru geymd í sjö ár frá lokum viðkomandi reikningsárs, sbr. lög nr. 145/1994 um bókhald.

Boð og uppboðssaga eru geymd eins lengi og reikningurinn sem þau tilheyra.

Aðgangurinn þinn stendur á meðan þú notar hann. Óskir þú eftir að honum sé lokað eyðum við því sem okkur er ekki skylt að geyma.

Netfang á póstlistanum er geymt þar til þú afskráir þig, og í hverjum pósti er hlekkur til þess.

6. Réttindi þín

Þú átt rétt á að fá að vita hvaða upplýsingar við geymum um þig og fá afrit af þeim.

Þú átt rétt á að láta leiðrétta rangar upplýsingar.

Þú átt rétt á að láta eyða upplýsingum sem okkur er ekki skylt að geyma, andmæla vinnslu og óska eftir að hún sé takmörkuð.

Þú átt rétt á að fá upplýsingar sem þú lést okkur í té á því formi að þær megi flytja annað.

Þú getur afturkallað samþykki hvenær sem er, hvort sem það snýr að póstlistanum eða mælingarkökunni.

Beiðni berst á info@uppbodshusid.is og við svörum innan mánaðar. Teljir þú að við förum illa með upplýsingarnar þínar getur þú kvartað til Persónuverndar, personuvernd.is.

7. Breytingar á stefnunni

Stefnan getur breyst, til dæmis ef við bætum við þjónustu eða mælingu. Sé breytingin veruleg biðjum við um samþykki upp á nýtt í stað þess að treysta á það gamla.

Samþykki fyrir mælingum

 

8. Hafa samband um persónuvernd

Uppboðshúsið ehf.
Kennitala: 530325-0830
Urriðaholtsstræti 24
210 Garðabær
Sími: 898 9097
Netfang: info@uppbodshusid.is