Hvað kostar að senda verk inn?
Það kostar ekkert að senda verk inn. Þú borgar söluþóknun aðeins ef verkið selst.
Hver er söluþóknunin?
Söluþóknun er 12% af hamarsverði, auk 24% virðisaukaskatts af þóknuninni. Hún dregst frá útborguninni og er greidd aðeins ef verkið selst.
Listaverkið sjálft ber ekki virðisaukaskatt. Reglan er í 5. gr. skilmálanna.
Hvað fæ ég útborgað af 100.000 kr. hamarsverði?
Útborgunin er hamarsverð að frádreginni söluþóknun og virðisaukaskatti af henni. Taflan sýnir dæmið skref fyrir skref.
| Hamarsverð | 100.000 kr. |
|---|---|
| Söluþóknun 12% | -12.000 kr. |
| Virðisaukaskattur 24% af þóknuninni | -2.880 kr. |
| Þú færð útborgað | 85.120 kr. |
Hvað borgar kaupandinn ofan á hamarsverðið?
Kaupandinn greiðir 12% uppboðsgjald, með virðisaukaskatti, og fylgiréttargjald til höfundar. Hvorugt kemur til frádráttar hjá þér.
Af 100.000 kr. hamarsverði greiðir kaupandinn alls 122.000 kr.. Hvernig hann greiðir er á síðunni Greiðsla og afhending.
Hvað ef verkið selst ekki?
Þá greiðir þú enga söluþóknun. Þú getur skráð verkið í næsta uppboð eða tekið það af skrá.
Verk selst ekki undir lágmarksverðinu, og það ákveður þú sjálfur. Hvernig það gerist er á síðunni Hvernig er verk metið og tekið til uppboðs.
Hvernig sendi ég verk inn?
Skráðu þig inn með Kenni og sendu verkið inn á vefnum, með myndum og því sem þú veist um það. Yfirlit yfir söluferlið er á síðunni Selja verk.