Charlotta Sverrisdóttir
Charlotta Sverrisdóttir er fædd og uppalin í Reykjavík. Hún byrjaði að læra málun árið 1998 í Long Beach City College í Kaliforníu, þar sem litirnir og blómin heilluðu hana, og sótti síðar Myndlistarskóla Kópavogs og fjölda námskeiða. Hún er ein af stofnendum Grósku, hefur tekið þátt í flestum sýningum á vegum Grósku og haldið einkasýningar. Blóm eru helsta viðfangsefni hennar, oft undir yfirskriftinni „My beautiful flowers“. Hún málaði lengst af í olíu en hefur á síðari árum fært sig yfir í akrýl. Áritun á verkum hennar er „Lotta“.
Engin birt verk eftir Charlotta Sverrisdóttir eru í boði.