Haukur Dór er fæddur í Reykjavík 1940 og nam við Edinburgh College of Art og Konunglegu listaakademíuna í Kaupmannahöfn. Síðar stundaði hann nám við Visual Art Center í Maryland í Bandaríkjunum. Hann hélt fyrstu einkasýningu sína á myndlist 1963 og hefur síðan haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum myndlistarmanna og leirlistamanna víða um lönd. Haukur Dór hefur unnið að leirlist og myndlist á Íslandi, í Danmörku, Spáni og Bandaríkjunum. Í dag helgar hann sig málaralistinni alfarið. Verk Hauks Dórs er að finna í Listasafni Íslands, Listasafni Reykjavíkur og Hönnunarsafni Íslands og að auki nokkrum öðrum listastofnunum og einkasöfnum.
Engin verk eru í boði núna.
Fleiri listamenn
- Gunnar Gunnarsson (f. 1949)
- Halldór Pétursson (1916–1977)
- Harold Bilson (f. 1948)
- Helma Þorsteinsdóttir
- Hendrikka Waage (f. 1966)
- Hildur Kolbrún Magnúsdóttir (f. 1966)