Góðgerðaruppboði lokið

Vel heppnað góðgerðaruppboð Uppboðshússins fyrir Góðvild
Fyrsta uppboði Uppboðshússins er nú lokið, en það var haldið til styrktar Góðvild styrktarsjóði, sem vinnur að bættum lífsgæðum og réttindum langveikra og fatlaðra barna á Íslandi.
Viðtökurnar voru afar góðar og yfir 3.000 manns skoðuðu uppboðið á meðan það stóð yfir. Við erum mjög ánægð með niðurstöðuna og þann áhuga sem fólk sýndi bæði listaverkunum og því mikilvæga málefni sem uppboðið studdi.
Þau listaverk sem ekki seldust á uppboðinu verða áfram í boði í beinni sölu á sölusíðu Uppboðshússins, þar sem áhugasamir geta skoðað verkin og keypt þau á föstu verði.
Við viljum færa öllum listamönnum, þeim sem lögðu til verk, bjóðendum og öðrum sem tóku þátt okkar bestu þakkir fyrir stuðninginn og þátttökuna.
Um leið óskum við Góðvild styrktarsjóði alls hins besta í því mikilvæga starfi sem sjóðurinn sinnir.
Þetta var fyrsta uppboðið okkar og skemmtilegt upphaf að því sem við vonum að verði spennandi framtíð Uppboðshússins.
Takk fyrir frábærar viðtökur!
Uppbodshúsid