Uppboðshúsið opnar með góðgerðaruppboði

Nýtt íslenskt uppboðshús, Uppboðshúsið, opnar formlega miðvikudaginn 24. september 2026 kl. 12:00. Fyrsta uppboðið verður góðgerðaruppboð þar sem allur ágóði rennur til Góðvildar styrktarsjóðs, sem vinnur að fjölbreyttum verkefnum til að bæta lífsgæði langveikra barna og barna með fötlun og fjölskyldna þeirra.

Uppboðshúsið verður starfrækt alfarið á netinu og fer uppboðið fram á Uppboðshúsið.is. Þar verður hægt að skoða verkin, fylgjast með boðum og bjóða í þau á meðan uppboðið stendur yfir.
Fjöldi listamanna og velunnara hefur lagt verkefninu lið og verða mörg falleg og áhugaverð listaverk á fyrsta uppboðinu. Meðal þeirra eru verk eftir Hjalta Parilíus og Skrípó, sem gáfu verk sérstaklega í tilefni góðgerðaruppboðsins.
Markmiðið með Uppboðshúsinu er að skapa lifandi íslenskan vettvang þar sem listaverk og aðrir áhugaverðir munir geta fengið nýtt líf og nýja eigendur. Jafnframt verður lögð áhersla á að gefa fjölbreyttum hópi listamanna tækifæri til að koma verkum sínum á framfæri.
Það þótti því við hæfi að fyrsta uppboðið yrði tileinkað góðu málefni.
Góðvild styrktarsjóður hefur um árabil staðið að verkefnum sem styðja langveik börn og börn með fötlun og fjölskyldur þeirra. Með góðgerðaruppboðinu gefst fólki tækifæri til að eignast einstök listaverk og um leið leggja góðu málefni lið.
Góðgerðaruppboðið hefst 24. september kl. 12:00 á Uppboðshúsið.is.