Fara í efni
Uppboðshúsið

Án titils

Skrípó

Tækni
Olía á striga
Ár
2023
Stærð
60 × 60 cm
Söluverð

300.000 kr.

+ 30.000 kr. fylgiréttargjald til höfundar. Samtals 330.000 kr.

Ástand

Nýtt verk

Uppruni

Verkið var gefið af Skrípó og selst til styrktar Góðvild styrktarsjóðs sem vinnur að málefnum langveikra og fatlaðra barna á Íslandi

Um verkið

Að baki Skrípó standa æskuvinirnir þeir Guðjón Viðarsson og Kári Þór Arnarsson. Vinasamband þeirra hefur alla tíð einkennst af sköpun, allt frá fyrstu sameiginlegu teikningunum og að þeim málverkum sem þeir mála saman í dag. Frá því sumarið 2023 hafa Guðjón og Kári málað myndir saman undir nafninu Skripo. Þeir vinna jafnan á tvo striga í einu, skiptast á að teikna og mála fígúrur, oft án þess að vita hvert verkið leiðir. Í sumum tilfellum teiknar annar aðeins augu eða handlegg áður en þeir skipta um striga og halda áfram á grunni hins. Þannig verður hver mynd samspil leikgleði, innsæis og sköpunar án fyrirfram ákveðinnar niðurstöðu.