Ástand
Gott ástand
Uppruni
Verkið var gefið af listamanni og selst til styrktar Góðvild styrktarsjóðs sem vinnur að málefnum langveikra og fatlaðra barna á Íslandi
Um verkið
Sara Jóhanna Vilbergsdóttir er íslensk myndlistarkona, fædd árið 1956. Hún nam myndlist við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og Statens Kunstakademi í Noregi. Sara vinnur aðallega með málverk en hefur einnig fengist við skúlptúra, ljósmyndun, saumaverk og bókaskreytingar. Hún hefur haldið fjölmargar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum bæði hér heima og erlendis. Frá árinu 2010 hefur hún jafnframt unnið með systur sinni Svanhildi undir nafninu DuoSisters.
