Fara í efni
Uppboðshúsið

Black Sheep

Hjalti Parelius (1979)

Tækni
Olía á striga
Ár
2026
Stærð
90 × 70 cm
Áætlað verð
390.000 kr. – 500.000 kr.
Ofan á hamarsverð leggst 12% uppboðsgjald og fylgiréttargjald.Nánar
Uppboðsgjald
12%
Fylgiréttargjald
39.000 kr. til 45.700 kr.
Áætlað heildarverð
475.800 kr. til 605.700 kr.

Fylgiréttargjaldið rennur til höfundar samkvæmt 25. gr. b höfundalaga nr. 73/1972. Það er þrepaskipt eftir fjárhæð, 10% af fyrstu 414.000 kr. og lægra hlutfall þar fyrir ofan.

Greiðsla og afhending nánar útskýrð í skilmálum og á sendingarsíðu.

Í gangi
Hlutur 22

Góðvild

Taka þátt í uppboði

Ástand

nýtt verk

Uppruni

beint frá listamanni

Um verkið

Hjalti Parelius Finnsson er íslenskur listamaður og sjálfmenntaður málari, búsettur í Hafnarfirði. Hann fæddist í Reykjavík árið 1979 og nam grafíska hönnun við Danmarks Designskole í Kaupmannahöfn, með áherslu á sjónræna miðlun. Hjalti byrjaði að mála árið 2009 eftir að hafa misst vinnuna í kjölfar fjármálahrunsins 2008. Upphaflega var málverkið leið til að hafa eitthvað fyrir stafni, en það sem byrjaði sem dægradvöl þróaðist fljótt í fullt starf. Í verkum sínum sækir Hjalti innblástur í dægurmenningu, auglýsingar, teiknimyndasögur og listasöguna. Húmor hefur ávallt verið hluti af sýn hans á heiminn og ratar því með eðlilegum hætti inn í listaverkin.